Til þess að gera virkjanir sem hagkvæmastar er nauðsynlegt að nýta alla umfram orku. Ein besta leiðin til þess að nýta alla þá orku sem hægt er að framleiða hverju sinni er að selja alla umfram orku beint inn á Raforkukerfið.
Að mörgu þarf að hyggja þegar selja á umframorku inn á kerfið. Eitt það mikilvægasta áður en hafist er handa er að semja um kaup og kjör við viðkomandi kaupanda. Þá er gott að hafa með sér fagmann sem þekkir inn á raforkukerfið og hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. RAF býður raforkuframleiðendum þá þjónustu að hjálpa þeim í gegnum þetta samningaferli og aðstoða þá á allan hátt til þess að ná sem hæsta söluverði á umframorkuna.
RAF setti upp og tendi Sleitustaðarvirkjun sem var fyrsta bændavirkjunin sem tengd var inn á kerfið hjá RARIK. RAF getur því hjálpað öllum aðilum sem vilja hefja sölu inn á raforkukerfið hvort sem það er inn á einfasa- eða þriggjafasa kerfi.
Hafið samband eða sendið tölvupóst ef þið hafið fyrirspurnir eða vantar nánari upplýsingar

