Pækilblönudarkerfið var hannað til þess að blanda pækil með mikilli nákvæmni fyrir sprautusöltunarvélar. Nú er búið að þróa kerfið svo hægt er nota það í hvaða tilgangi sem er. Kerfið getur blandað stillanlegum pækilstyrk í 400 L, 600 L eða 1000L fiskikör ásamt því að sjá um forða fyrir sprautuvél eða annan búnað.
Kerfið er einnig með sjálfvirka skömmtun á íblöndunarefnum, t.d. Carnal ofl. Kerfið kemur með tveimur blöndunarstöndum svo hægt er að blanda pækil í tvö kör á tveimur mismunandi stöðum. Þetta gefur kost á að vera með tvo blöndunarstanda við sprautusöltunarvélina svo alltaf er tilbúið kar til að leggja fiskin í. Snertiskjár með takkaborði gerir allar stillingar auðveldar og þægilegar fyrir notandann.

Hafið samband eða sendið tölvupóst ef
þið hafið fyrirspurnir eða vantar nánari upplýsingar
um pækilkerfið.

