RAF ehf

Rafbjögunarsía er búnaður sem var hannaður hjá RAF í samstarfi við Rafhönnun. Rafbjögunarsían er búnaður sem á engan sinn líkan í heiminum. Hún er ætluð

Rafbjögunarsía - minni orkunotkun

Rafbjögunarsía er búnaður sem var hannaður hjá RAF í samstarfi við Rafhönnun. Rafbjögunarsían er búnaður sem á engan sinn líkan í heiminum. Hún er ætluð til þess að minnka truflanir og leiðrétta þær bjaganir sem geta verið á rafkerfum.

Rafbjögunarsían var upphaflega hönnuð til notkunar um borð í skipum til að leiðrétta truflanir og minnka álagið á rafölunum. Hún hefur nú einnig verið þróuð minni útgáfa sem getur nýst vel í hinum ýmsu fyrirtækjum og stofnunum.

Rafbjögunarsía í skip
Rafbjögunarsían hefur verið í þróun í nokkur ár en er nú komin í endanlegt horf. Hún var höfð í reynslukeyrslu í eitt ár um borð í Gnúp Gk 11 og varð árangurinn framar  öllum væntingum.  Álag á rafölunum minnkaði til muna og fór hitinn á afloftinu frá rafölunum úr 80 °C í 35 °C. Eldsneytissparnaðurinn varð meiri heldur en reiknað hafði verið með auk þess sem allt almennt viðhald á skipinu minnkaði til muna. Óhætt er því að segja að hér hafi einstæður árangur náðst.

Misjafnt getur verið á milli skipa hvernig best er að haga búnaðnum og hvaða árangurs má vænta. Til þess að hægt sé að reikna það allt út verður að fara um borð í skipið með sérútbúin mælitæki til að sjá hvernig rafkerfið bregst við hinum ýmsu álagssveiflum.  

Rafbjögunarsía í fyrirtæki og stofnanir
Oft leynast hinar ýmsu truflanir í fyrirtækjum og stofnunum sem geta haft áhrif á viðkvæman tölvubúnað og mælitæki. Oft getur verið erfitt og tímafrekt að komast í veg fyrir slíkar truflanir en smá truflanir geta haft alvarlegar afleiðingar þegar um viðkvæman tölvubúnað er að ræða. Rafbjögunarsían getur lagað og komið í veg fyrir að slíkar truflanir myndist og þannig verndað tölvubúnaðinn.

Rafbjögunarsían getur einnig komið sér vel í stærri fyrirtækjum þar sem minnka þarf álag á stofna og heimtaugar. Rafbjögunarsían minnkar straumnotkun og léttir þannig álagið á strengjunum og getur þannig komið í veg fyrir kostnaðarsama endurnýjun á stofnlögnum.

 

Hafið samband eða sendið tölvupóst ef þið hafið fyrirspurnir eða vantar nánari upplýsingar um Rafbjögunarsíuna. 

 

 

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf