Fá má ósonbúnað sem framleiðir óson og blandar því saman við vatn eða annan vökva. Það er gert þegar verið er að hreinsa eða skola vörur og óskað er eftir því að drepa bakteríur og óæskilegar örverur á fljótvirkan og öruggan hátt.
Reynst hefur afar vel að blanda ósoni saman við skolvatn þegar hráefni er skolað áður en það fer í vinnslu eða áður en það fer í pökkun. Með því að skola hráefnið í ósonblönduðu vatni eykst geymsluþolið á vörunni verulega.
Einnig má ósonblanda ís sem notaður er til kælingar. Með því að ósonblanda ísinn þá hægist á allri gerlamyndum og varan helst fersk miklu lengur.
Ósonvatn hefur t.d. verið notað til að skola hausa og bein áður en það er sett í þurrkun og hefur það reynst vel í baráttunni við ólyktina sem kemur frá fiskþurrkunum.
Fá má búnaðinn í ýmsum stærðum, sem henta öllum fyrirtækjum, jafnt stórum sem smáum. Það eina sem búnaðurinn þarf er hreint herbergi með góðri loftræstingu.
Endilega hafið samband eða sendið tölvupóst ef þið hafið fyrirspurnir eða vantar nánari upplýsingar um ósonbúnaðinn.

