Fá má ósonbúnað sem framleiðir óson og blandar því saman við andrúmsloftið á vinnustaðnum. Það er aðallega hugsað til þess drepa bakteríur sem eru í andrúmsloftinu. Þetta veldur þess að loftið verður hreinna og hætta á sjúkdómum minnkar og öll ólykt minnkar til muna. Skordýr og flugur flýja óson í andrúmsloftinu og þetta heldur því öllum þessháttar skaðvöldum í skefjum.
Ósonið hefur einnig verið notað til sótthreinsunar. Ósoninu er þá dælt inn í rýmið í miklum styrk og látið standa í sólahring og loftræst síðan vel á eftir. Þetta hefur t.d. reynst vel í landbúnaði þegar sótthreinsa á rýmið áður en ný dýr koma í það.
Búnaðurinn fæst í ýmsum stærðum sem henta öllum fyrirtækjum jafnt stórum sem smáum. Það eina sem búnaðurinn þarf er hreint herbergi með góðri loftræstingu.
Ósontækin eru búin skynjurum, sem tryggja réttan ósonstyrk, svo mönnum og húsdýrum stafar engin hætta af ósoninu.
Endilega hafið samband eða sendið tölvupóst ef þið hafið fyrirspurnir eða vantar nánari upplýsingar um ósonbúnaðinn.

