Óson hefur mikla þýðingu fyrir landbúnað og eru fjölmargir möguleikar að nýta það á ýmsan hátt hvort sem maður vill minnka hættu á sjúkdómum, sótthreinsa eða losna við ólykt.
Vörn gegn sjúkdómum
Með því að ósonblanda andrúmsloftið fælast flugur og önnur skordýr frá og koma ekki inn í búin. Flugur eru í
mörgum tilfellum einn helsti smitberi sjúkdóma sem bændur þurfa að kljást við og munar um minna að losna við þær út úr
búunum. Óson drepur líka bakteríur og örverur sem veldur því að loftið verður hreinna og ferskara og minni líkur eru á að
sjúkdómar komi upp.
Sótthreinsun
Fyrir þá bændur sem hafa einangraða klefa eða tæma búið reglulega er hægt að nota
óson til sótthreinsunar áður en ný dýr eru sett inn í húsið. Þá er slökkt á loftræstingunni og
ósoni dælt inn í miklum styrk og rýmið þannig sótthreinsað. Húsið er síðan loftræst vel áður en ný
dýr eru sett inn í rýmið.
Vörn gegn ólykt
Með því að drepa niður bakteríur minnkar öll ólykt verulega. Einnig er
búið að þróa búnað til að blanda ósoni við mykju sem eyðir lyktinni áður en henni er síðan dreift á
túnin. Þetta hefur reynst veruleg hjálp sérstaklega þegar búin eru nálægt þéttbýli.
Hafið samband eða sendið tölvupóst ef
þið hafið fyrirspurnir eða vantar nánari upplýsingar um óson í landbúnaði.

