fimmtudagur 29.júlí 2010
Raf ehf. hefur ráðið Rögnvald Guðmundsson iðnrekstarfræðing sem framkvæmdastjóra félagsins frá og með 1. júlí s.l.

Rögnvaldur starfaði áður sem svæðisstjóri Símans á Akureyri og þar á undan sem framkvæmdastjóri Skrín ehf á Akureyri og Element hf á Sauðárkróki. Frumkvöðulinn Árni Bergmann og aðaleigandi Rafs ehf, hefur ákveðið að einbeita sér að tækni- og sölumálum félagsins og mun taka við nýju starfi hjá félaginu sem tækni- og sölustjóri.
Árni segir það mikilvægt að hann geti áfram einbeitt sér að þróun og sölu á nýjum lausnum félagsins og fylgt þannig eftir vaxandi eftirspurn og auknu umfangi félagsins.

